Almenningsbókasöfn

Miðvikudaginn 07. maí 1997, kl. 15:34:47 (5982)

1997-05-07 15:34:47# 121. lþ. 119.1 fundur 238. mál: #A almenningsbókasöfn# (heildarlög) frv., SJóh (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 119. fundur

[15:34]

Sigríður Jóhannesdóttir:

Hæstv. forseti. Við 2. og 3. umr. málsins gerði ég grein fyrir þeim fyrirvara sem ég hef við þetta mál og í umræðum við 2. umr. og síðar hafa mér borist upplýsingar sem gera það að verkum að ég efast mjög um réttmæti þess að samþykkja þetta frv. í þeirri mynd sem það liggur hér fyrir. Ég mun því ekki greiða atkvæði.