Skipan prestakalla

Föstudaginn 09. maí 1997, kl. 14:22:27 (6001)

1997-05-09 14:22:27# 121. lþ. 120.11 fundur 241. mál: #A skipan prestakalla# (starfsþjálfun guðfræðikandídata) frv., Frsm. minni hluta GGuðbj (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 120. fundur

[14:22]

Frsm. minni hluta allshn. (Guðný Guðbjörnsdóttir):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. frá minni hluta allshn. um skipan prestakalla og prófastsdæma og um starfsmenn þjóðkirkju Íslands.

Eins og fram kom í máli meiri hlutans fjallaði nefndin um málið og fékk gesti á sinn fund og fór yfir umsagnir sem bárust frá leikmannaráði þjóðkirkjunnar, biskupi Íslands og guðfræðideild Háskóla Íslands.

Í 1. gr. frumvarpsins er lagt til að starfsþjálfun guðfræðikandídata verði tveir mánuðir í stað fjögurra áður. Ástæða styttingarinnar er fyrst og fremst kostnaðarleg, þ.e. kostnaðurinn hefur farið fram úr áætlunum þar sem kandídatar eru helmingi fleiri en áætlað var.

Þó að ákvæði þessu sé aðeins ætlaður stuttur líftími, þar sem í frumvarpi um stöðu, stjórn og starfshætti kirkjunnar er gert ráð fyrir að ný ákvæði um starfsþjálfun verði sett í starfsreglur, telur minni hlutinn rétt að taka undir með guðfræðideild Háskóla Íslands og leggjast gegn þessari breytingu. Meginrökin eru þau að almennt þykir æskilegt að vanda vel til starfsþjálfunar í námi guðfræðikandídata sem annarra og ekki verður séð að hægt verði að ná sömu eða bættri starfsþjálfun á helmingi styttri tíma. Samþykkt frumvarpsins má skilja sem skilaboð um að þingið telji rétt að minnka þessa starfsþjálfun. Guðfræðideild háskólans, sem ber ábyrgð á menntun guðfræðikandídata, er ekki þeirrar skoðunar og minni hlutinn ekki heldur. Sá kostnaður sem um ræðir kemur úr kirkjumálasjóði og hefur væntanlegur sparnaður því ekki áhrif á ríkissjóð.

Undir nál. minni hluta skrifa Guðný Guðbjörnsdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir og Ögmundur Jónasson.