Skipan prestakalla

Föstudaginn 09. maí 1997, kl. 14:56:05 (6017)

1997-05-09 14:56:05# 121. lþ. 120.11 fundur 241. mál: #A skipan prestakalla# (starfsþjálfun guðfræðikandídata) frv., ÖJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 120. fundur

[14:56]

Ögmundur Jónasson (andsvar):

Hæstv. forseti. Mér finnst mikilvægt að hv. þm., séra Hjálmar Jónsson, skýri þá hvernig standi á því að guðfræðideild Háskóla Íslands, sem hefur ábyrgðina á menntun presta á hendi, mælist mjög eindregið til þess að við styttum ekki þennan starfsþjálfunartíma. Mér finnst að við þurfum að fá skýringar á því.