Umferðarlög

Föstudaginn 09. maí 1997, kl. 17:15:23 (6055)

1997-05-09 17:15:23# 121. lþ. 120.14 fundur 487. mál: #A umferðarlög# (ölvunarakstur, vátryggingarfjárhæðir o.fl.) frv., Frsm. minni hluta JóhS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 120. fundur

[17:15]

Frsm. minni hluta allshn. (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar):

Herra forseti. Ég skil vel að hv. formanni allshn. líði illa í ræðustól þegar hún þarf í hverju málinu á fætur öðru að ganga gegn ákvæðum í frv. dómsmrh. Það lýsir sér aftur og aftur þegar hv. þm. kemur hér í ræðustól.