Tekjuskattur og eignarskattur

Mánudaginn 12. maí 1997, kl. 14:41:18 (6110)

1997-05-12 14:41:18# 121. lþ. 121.15 fundur 528. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur# (skatthlutfall, barnabætur o.fl.) frv., RG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 121. fundur

[14:41]

Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Hér mun fara fram efnisleg umræða um afgreiðslu efh.- og viðskn. Mín athugasemd laut að því á hvern hátt hv. þm. mælti fyrir nál. og ég verð að segja alveg eins og er að það var bara allt annað að heyra í hv. þm. þegar hann kom hér upp í annað sinn.