Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum

Mánudaginn 12. maí 1997, kl. 15:40:39 (6123)

1997-05-12 15:40:39# 121. lþ. 121.7 fundur 256. mál: #A varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum# (heildarlög) frv., Frsm. ÓÖH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 121. fundur

[15:40]

Frsm. umhvn. (Ólafur Örn Haraldsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég kem hér einungis til að staðfesta að sá skilningur sem hv. þm. hefur lagt í orð mín er réttur. Við efumst ekki um fyrirætlanir og vilja þeirra sem munu reisa varnarmannvirkin og efumst ekki um gildi þeirra. Þannig hefur hann skilið orð mín rétt hvað þetta varðar.