Opinber fjölskyldustefna

Mánudaginn 12. maí 1997, kl. 23:44:34 (6195)

1997-05-12 23:44:34# 121. lþ. 122.25 fundur 72. mál: #A opinber fjölskyldustefna# þál., ÍGP (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 122. fundur

[23:44]

Ísólfur Gylfi Pálmason (andsvar):

Herra forseti. Ég geri ráð fyrir því að starfandi félmrh. komi til með að svara þeim fyrirspurnum sem hv. þm. beindi til hans. En mig langar til að ítreka að gjarnan er talað um það að þegar einn fingur bendir fram, þá benda þrír til baka og mér verður auðvitað hugsað til fólksins okkar, þ.e. mér finnst sjálfsagt að benda á það að við sem erum í þingsalnum eigum okkar fjölskyldur og við megum gjarnan horfa til þess í umræðunni.