1997-05-13 01:11:21# 121. lþ. 122.21 fundur 407. mál: #A Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins# frv., Frsm. meiri hluta VE (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 122. fundur

[25:11]

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka fyrir þennan síðbúna stuðning hv. þm. Svavars Gestssonar og Alþb. og ég vil fullvissa hv. þm. um að stuðningur stjórnarliðsins við málið bilar ekki neitt þótt hann hafi tekið upp þennan síðbúna stuðning við málið.