Stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands

Þriðjudaginn 13. maí 1997, kl. 11:02:20 (6239)

1997-05-13 11:02:20# 121. lþ. 123.5 fundur 409. mál: #A stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands# frv., JóhS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 123. fundur

[11:02]

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Ég tel mikilvægt að það tækifæri sem gefst nú við formbreytingu á bönkunum og ráðningu nýrra bankastjóra við hlutafélagabankana verði notað til að taka öll starfskjör stjórnenda bankanna til endurskoðunar og að starfskjör þeirra verði miðuð við starfskjör stjórnenda ríkisstofnana sem kjaranefnd ákveður. Ég tel brýnt að Alþingi lýsi vilja sínum til endurskoðunar á starfskjörum stjórnenda bankanna með þessum hætti og segi já.