Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins

Þriðjudaginn 13. maí 1997, kl. 11:09:25 (6246)

1997-05-13 11:09:25# 121. lþ. 123.7 fundur 407. mál: #A Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins# frv., ÁE (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 123. fundur

[11:09]

Ágúst Einarsson:

Herra forseti. Nýsköpunarfrv. ríkisstjórnarinnar er illa útfært. Við í þingflokki jafnaðarmanna studdum tvær greinar þessa frv. við fyrri umræðu, þar sem lýst var yfir stuðningi við nýsköpun. Hins vegar er málið í þessum búningi eftir sem áður þannig úr garði gert að það nær ekki þeim góðu markmiðum um eflingu nýsköpunar sem við styðjum. Við sitjum því hjá við lokaafgreiðslu málsins.