Afgreiðsla mála á fundinum

Þriðjudaginn 13. maí 1997, kl. 11:22:15 (6251)

1997-05-13 11:22:15# 121. lþ. 123.92 fundur 330#B afgreiðsla mála á fundinum# (um fundarstjórn), VE
[prenta uppsett í dálka] 123. fundur

[11:22]

Vilhjálmur Egilsson:

Hæstv. forseti. Ég vil vekja athygli á því að þau mál sem ég er að mæla fyrir hér eru nú yfirleitt samkomulagsmál og sérstaklega það mál sem ég var að mæla fyrir. Það er einmitt þáltill. um gerð kynslóðareikninga og er flutt af hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni. Ég treysti því að hv. þm. Svavar Gestsson fari nú ekki að tefja það mál.