Kosningar til Alþingis

Þriðjudaginn 13. maí 1997, kl. 11:44:11 (6267)

1997-05-13 11:44:11# 121. lþ. 123.38 fundur 116. mál: #A kosningar til Alþingis# (atkvæðagreiðsla erlendis) frv., Frsm. SP (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 123. fundur

[11:44]

Frsm. allshn. (Sólveig Pétursdóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það koma auðvitað margvísleg mál til meðferðar hjá allshn. og þar er líka fjöldi þingmannafrv. Nefndin fór yfir öll þau mál sem eru til meðferðar í nefndinni og ræddi sérstaklega þetta mál sem hv. þm. er að benda á, en það var ekki samkomulag um að málið yrði tekið út úr nefndinni.