Svavar Gestsson (andsvar):
Herra forseti. Hér er bersýnilega um það að ræða að verið er að mismuna þingmönnum. Og það er kannski kominn tími til að stjórnarliðið sýni sitt rétta andlit í því efni gagnvart okkur, þingmönnum stjórnarandstöðunnar. Þetta er ekki nýtt mál sem ég er að mæla fyrir og tala um heldur flutti ég það líka í fyrra. Og það hefur fengið mjög góðar undirtektir hér í salnum þannig að það er bersýnilegt að einhverjir menn í allshn. sem hv. þm. ber fyrir sig hafa allt aðra skoðun heldur en kom t.d. fram við umræðu um málið hér í þinginu þegar hún fór fram. Ég segi því fyrir mitt leyti og vil fara fram á það við hv. formann allshn. að það verði kannað að þetta mál verði tekið út því það hafa engin rök komið fram fyrir því að nauðsynlegt sé að afgreiða það mál sem hér er verið að taka fyrir en ekki það mál sem ég er að spyrja um --- engin rök, svarið er af því bara, bara af því að einhverjir menn telja að hlutirnir liggi svona. Ég tel það ekki rök og tek það svar ekki gilt, herra forseti.