Umhverfisráðherra (Guðmundur Bjarnason):
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að lengja umræðuna mikið. Mig langar fyrst og fremst að koma á framfæri þakklæti mínu til umhvn. fyrir það mikla starf sem nefndin öll, bæði formaður og einstakir nefndarmenn, hefur lagt á sig við að afgreiða þetta mikilvæga mál, þetta frv. sem lagt var fram á haustdögum og ekki í fyrsta skipti heldur fimmta. Þetta er í fimmta sinn sem lagt er fram frv. til skipulags- og byggingarlaga. Ég veit eftir að hafa fylgst með störfum nefndarinnar og ég sé á þeim gögnum sem nefndin hefur lagt fyrir og eru til umfjöllunar, brtt. og nál., að af hálfu nefndarmanna hefur verið lögð mikil vinna og alúð í þetta veigamikla mál á þann hátt að fullur sómi sé að.
Ég get að hluta til tekið til mín þær athugasemdir um málsmeðferðina sem hafa komið fram í umræðum hjá einstökum hv. þm., kannski sérstaklega þó það að hafa lagt frv. fram óbreytt frá fyrra þingi í upphafi þessa þings þrátt fyrir að ýmsar athugasemdir væru komnar fram við málið eins og það var lagt fram á seinasta þingi. En þá var afstaða mín eða skoðun sú að það mundi auðvelda vinnu nefndarinnar að fá frv. óbreytt og geta stuðst við þær umsagnir sem áður höfðu borist. Ég sé í nál. að það hefur verið gert en auðvitað hefði það kannski auðveldað eða flýtt fyrir vinnu í nefndinni hefðu önnur vinnubrögð verið viðhöfð og ekki meira um það að segja héðan af. Þetta varð niðurstaðan og hvort sem það hefur auðveldað vinnuna eða ekki þá er mér auðvitað ljóst að vinnan hefur verið gríðarlega mikil að koma frv. í þann búning sem það liggur hér fyrir nú til 2. umr. og vonandi til samþykktar og mál til komið.
Ég vil líka aðeins ítreka og undirstrika það sem fram hefur komið hjá hv. frsm. og þeim tveim hv. þm. sem hér hafa rætt og gert grein fyrir fyrirvörum sínum við uppáskrift á nál., að fyrirvarar þeirra hafa einkum fjallað um málsmeðferðina og hvernig frv. var lagt fyrir. Ég vil út af því segja að ég held að þrátt fyrir allt hafi þeir aðilar sem unnu að undirbúningi af hálfu umhvrn. gert það af bestu samviskusemi en greinilegt er að menn hafa verið þeirrar skoðunar, bæði á hv. þingi og í nefndinni, að ýmislegt mætti betur fara. Uppsetningin á frv. virðist líka hafa tekið stakkaskiptum. Ef ég man rétt tók ég út af fyrir sig undir þær athugasemdir hv. 4. þm. Austurl. við 1. umr. málsins að breyta bæri uppsetningu t.d. hvað varðar skipulagsferlið. Ég taldi að það gæti verið til bóta og er sannfærður um að það sem nefndin hefur lagt til í því efni, sem og öðru, er til þess að styrkja málið í heild sem er afar mikilvægt.
Þetta vildi ég fyrst og fremst fá að undirstrika, hæstv. forseti, og þakka nefndarmönnum fyrir þá miklu vinnu sem þeir hafa lagt í þetta. Þetta frv. hefur tekið mestan starfstíma nefndarinnar. Einnig ber að þakka nefndinni fyrir það afrek að skila hreinu borði, þ.e. að afgreiða frá sér öll þau mál sem ráðherra hefur lagt fram til umfjöllunar í nefndinni. Það finnst mér bera vott um að nefndin hefur haft fullan vilja til að vinna sitt verk af mikilli samviskusemi.
Ég vil aðeins víkja að þáttum sem hv. 4. þm. Austurl. gerði sérstaklega grein fyrir. Það snertir vangaveltur hans um lögin um mat á umhverfisáhrifum og nauðsyn þess að endurskoða og fella þau að því frv. sem er til meðferðar. Við höfum áður rætt um það út af fyrir sig og þá afstöðu mína að leggja þetta frv. fram og reyna að fá það samþykkt og fara síðan í vinnu við endurskoðun á lögunum um mat á umhverfisáhrifum og vil ég aðeins staðfesta það að sú vinna er hafin, þ.e. undirbúningur er hafinn. Við héldum fyrir örfáum dögum mikilvægan fund með ýmsum framkvæmdaraðilum og fulltrúum stofnana, sem koma að þeim málum er mat á umhverfisáhrifum varðar og framkvæmd þeirra laga, til að fá athugasemdir og álit þeirra og viðhorf um það á hverju þyrfti helst að taka og hvað hefði komið fram á þeim tíma sem lögin hafa verið í gildi. Ég tel að það hafi verið afar mikilvægur fundur og margt gagnlegt og þýðingarmikið komið fram sem verður að gagni við vinnuna við endurskoðun löggjafarinnar. Ég mun á næstu dögum skipa nefnd til þess að vinna það starf og ég vona að við komum frumvarpi hér inn á haustþingi eða á næsta þingi, helst á haustþingi, til umfjöllunar og væri æskilegt að okkur tækist að klára það á næsta þingi, því ég held að það sé staðreyndin að margt hefur komið fram sem þarf að taka til endurskoðunar varðandi þá löggjöf enda við því að búast. Hún var þess eðlis að menn máttu reikna með því að sú nýja hugsun, sem þar er verið að setja inn og verið er að taka á, mundi framkalla ýmsar athugasemdir og við yrðum að læra af reynslunni hvað það varðar sem ég tel að við höfum gert.
Ég vil síðan aðeins að lokum taka undir hugleiðingar hv. þm. um mikilvægi svæðisskipulags. Ég held að vísu að það sé mál sem þarf að þróast og er að þróast. Við erum að átta okkur betur á því hvernig á að taka á þeim málum og hversu mikilvægt það er að vanda vel alla skipulagsvinnu og svæðisskipulag er vissulega mikilvægur þáttur í því þannig að það er spurning um það þess vegna hvort tímabært sé að lögfesta það skipulagsstig. En ég vil aðeins undirstrika að ég er um margt sammála þeim hugleiðingum sem komu fram hjá hv. þm. Það hefur m.a. reynsla og umræða undangenginna mánaða sýnt okkur og sú mikla vinna sem nú er að taka enda varðandi svæðisskipulag miðhálendisins, sem er ekki síður mikilvægt að fái góðan endi. Og því miður verð ég að taka einnig undir það með hv. þm. að mér finnst sumt í umræðunni og jafnvel í fjölmiðlaumfjöllun um þá vinnu hafa verið þess eðlis að gera hana tortryggilega, sem er mjög slæmt, og það er kannski fyrir það að menn eru að blanda þar inn óskyldum atriðum eins og um eignarhald og fyrirframráðstöfun á landi o.s.frv. Hér er á hinn bóginn um að ræða svo mikilvægt mál sem kennir okkur að nýta þennan þátt sem svæðisskipulag er til þess að horfa betur til framtíðar og vinna af meiri framsýni að hinum ýmsu verkefnum sem þarf að takast á við og ekki síst á miðhálendinu.
Ég þakka síðan fyrir hugleiðingar um nauðsyn þess að styrkja ráðuneyti umhverfismála. Að vísu hefur það ráðuneyti þróast nokkuð hratt á undanförnum árum og ég hygg að sumum þyki kannski nóg um. Umhverfismálin er vaxandi málaflokkur og ég held að íslensku þjóðinni sé að verða æ betur ljóst hversu mikla þýðingu hann hefur. Við sitjum sumpart eftir þegar við berum okkur saman við nágrannalöndin og önnur lönd, e.t.v. fyrir það að við höfum verið grandalausari gagnvart því í hvernig ástandi umhverfismálin eru og talið að hér væri allt í hinum besta sóma en það er sannarlega margt sem við þurfum að hyggja að í þessu efni og nauðsynlegt að fylgja þessum málaflokki fram af einurð og viðurkenna mikilvægi hans.
Ég vona síðan að málið fái framgang til loka á þann hátt sem hér hefur verið lagður grunnur að með fullu samkomulagi í nefndinni og samstöðu allra nefndarmanna sem mér finnst mjög mikilvægt við svo stóran og þýðingarmikinn málaflokk. Ég vil þakka nefndarmönnum öllum ekki síst stjórnarandstöðunni fyrir að hafa lagt sig fram um að ná saman með stjórnarliðinu í þessu efni og vænti þess að þær athugasemdir sem hv. formaður og frsm. nefndarinnar gerði grein fyrir áðan varðandi athugasemdir sem hafa borist á síðustu stundu frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga verði ekki til þess að brjóta upp það góða samstarf heldur reyni menn að ná málinu öllu í höfn með hinu besta samstarfi innan nefndar og við sambandið og fulltrúa sveitarfélaganna sem eru gerendur í þessu efni og er frv. ekki síst mikilvægt fyrir framkvæmdir á vegum sveitarfélaganna.
Að lokum vil ég endurtaka þakkir mínar til nefndarmanna allra fyrir vinnu þeirra.