Svavar Gestsson (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka hv. 2. þm. Vesturl. fyrir ágæt svör. Ég tel að það sé mjög mikilvægt sem hann sagði um síðustu mgr. 30. gr. en hann lítur þannig á að í raun sé áskilnaður samkvæmt þeirri mgr. skilyrði fyrir því að hægt sé að gera þjónustusamninga samkvæmt greininni.
Hins vegar heyrði ég að hann treysti sér ekki til að fallast á ábendingar um að þrengja greinina enn þá meira, t.d. með því að kalla til fjárln. eins og ég nefndi. Með hliðsjón af því held ég að best væri fyrir málið að greinin yrði felld út til að ná sem víðtækastri samstöðu um málið og það verði svo tekið upp til meðferðar síðar.