Lánasjóður landbúnaðarins

Miðvikudaginn 14. maí 1997, kl. 11:37:21 (6445)

1997-05-14 11:37:21# 121. lþ. 124.10 fundur 424. mál: #A Lánasjóður landbúnaðarins# frv., EgJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 124. fundur

[11:37]

Egill Jónsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Efnislega fólst ekkert í þessu andsvari hv. 2. þm. Suðurl. Málefnalega fólst ekkert í þessu andsvari. Það kom hins vegar fram í því misskilningur á mínum orðum. Í frv., eins og það var lagt fram, var búnaðargjaldið ákveðið 1,1%. Því er breytt í frv. um búnaðargjald upp í 1,15% hjá þessum tveimur búgreinum. Og ef skil það rétt þá er það hækkun. Á sama tíma var lækkað til annarra búgreina þannig að það var auðvitað þetta sem ég átti við. Og það eina sem efnislega kom fram í þessu andsvari hjá hv. frsm. er byggt á misskilningi.