Lánasjóður landbúnaðarins

Miðvikudaginn 14. maí 1997, kl. 11:40:31 (6447)

1997-05-14 11:40:31# 121. lþ. 124.10 fundur 424. mál: #A Lánasjóður landbúnaðarins# frv., EgJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 124. fundur

[11:40]

Egill Jónsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér er afskaplega ljúft og skylt að gera að því leyti nánari grein fyrir minni afstöðu en ég gerði hér í upphafi, að þessari ríkisstjórn, reyndar öllum góðum málum, er ég fús að fylgja. En ólög styð ég ekki þó þau komi frá ríkisstjórninni.