Lánasjóður landbúnaðarins

Miðvikudaginn 14. maí 1997, kl. 12:15:14 (6457)

1997-05-14 12:15:14# 121. lþ. 124.10 fundur 424. mál: #A Lánasjóður landbúnaðarins# frv., ÁMM (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 124. fundur

[12:15]

Árni M. Mathiesen (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ágústi Einarssyni fyrir að taka svo kröftuglega undir málflutning minn, bæði í þessu máli og öðrum, og þakka honum fyrir ráðleggingarnar um hvernig ég hefði átt að skrifa undir nál. Hins vegar helgast það að ég skrifa ekki undir það með fyrirvara af því að ég lít á þessar breytingar sem heildarbreytingar á bankakerfinu og ég vil standa að þeim breytingum fyrirvaralaust. Ég tel þær í heild sinni vera mjög til bóta. Þó að eitthvað hefði mátt vera öðruvísi er það ekki það mikið miðað við umsvif þessa kerfis að ástæða sé fyrir mig að skrifa undir eitthvað af því með fyrirvara. Undirskriftin felst í því að ég tel hana vera hluta af heildarundirskrift minni undir breytingar á bankakerfinu.