Kristinn H. Gunnarsson:
Herra forseti. Í fyrri málsl. 4. mgr. 3. gr. er lagt blátt bann við því að veðsetja aflaheimildir. Það er skýrt og skýlaust í ákvæði greinarinnar. Með þeirri viðbót sem hér er lögð til næst ekki fram nein endurbót á því ákvæði. Það er þegar strangt fyrir og eina hættan sem menn geta tekið með því að bæta þessu við er að draga úr gildi ákvæðisins. Því segi ég nei.