Samningsveð

Fimmtudaginn 15. maí 1997, kl. 10:29:58 (6561)

1997-05-15 10:29:58# 121. lþ. 127.2 fundur 234. mál: #A samningsveð# frv., JóhS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur

[10:29]

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Með þessari brtt. er verið að styrkja sameignarákvæði í lögum um stjórn fiskveiða þannig að skýrt komi fram í þessum lagatexta að þrátt fyrir umrætt ákvæði 4. tölul. 3. gr. myndi úthlutun slíkra réttinda ekki eignarrétt. En um það kom ábending í lögfræðiáliti sem allshn. fékk. Ég segi já við þessari tillögu.