Samningsveð

Fimmtudaginn 15. maí 1997, kl. 10:37:56 (6566)

1997-05-15 10:37:56# 121. lþ. 127.2 fundur 234. mál: #A samningsveð# frv., VS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur

[10:37]

Valgerður Sverrisdóttir:

Hæstv. forseti. Með þessu ákvæði er verið að tryggja inneignir almennings í bankastofnunum. Það kemur í veg fyrir að útgerðaraðilar geti selt kvóta frá skipi án heimildar bankastofnunar. Meðal annars vegna hagsmuna almennings er nauðsynlegt að þetta ákvæði sé í lögum og ég segi nei.