Samningsveð

Fimmtudaginn 15. maí 1997, kl. 10:44:00 (6568)

1997-05-15 10:44:00# 121. lþ. 127.2 fundur 234. mál: #A samningsveð# frv., GHall (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur

[10:44]

Guðmundur Hallvarðsson:

Herra forseti. Að veita útgerðarmönnum rétt til veðsetningar kvótans er þvert á áður sett lagaákvæði um að auðlindirnar í hafinu séu sameign þjóðarinnar. Þetta ákvæði mun enn fremur veita þeirri óáran brautargengi sem því miður hefur allt of lengi gengið í viðskiptum milli útgerðarmanna með kvótann. Ég segi nei.