Jón Kristjánsson:
Herra forseti. Með þessu ákvæði er verið að eyða réttaróvissu sem hefur ríkt um aðskilnað aflaheimildar frá fiskiskipi. Ef það hefði ekki verið gert hefði verið hætta á að útgerðir og sérstaklega smærri útgerðir hefðu lent í öðrum áhættuflokki hjá bönkum í útlánum og rýrt kjör sjávarútvegsins. Þetta ákvæði grefur ekki undan 1. gr. fiskveiðistjórnarlaganna. Það hefur komið skýrt fram í störfum allshn. Þess vegna segi ég já.