Búnaðargjald

Fimmtudaginn 15. maí 1997, kl. 12:13:02 (6584)

1997-05-15 12:13:02# 121. lþ. 127.5 fundur 478. mál: #A búnaðargjald# (heildarlög) frv., EOK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur

[12:13]

Einar Oddur Kristjánsson (andsvar):

Herra forseti. Það er greinilegt að hér er á ferðinni hlutur sem mig grunar að gætu verið einhver mistök. Ég vil taka það fram að ég veit að það er þingflokksfundur hjá Sjálfstfl. núna eftir nokkrar mínútur og ég tilkynni það hér með að ég mun taka þetta mál fyrir. (Gripið fram í: Liggja sjálfstæðismenn á málinu?) Það skiptir mig ekki máli.