Stefnumótun í menntunarmálum í landbúnaði

Fimmtudaginn 15. maí 1997, kl. 12:47:36 (6597)

1997-05-15 12:47:36# 121. lþ. 127.9 fundur 377. mál: #A stefnumótun í menntunarmálum í landbúnaði# þál., ÁE
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur

[12:47]

Ágúst Einarsson:

Herra forseti. Ég sé sérstaka ástæðu til að þakka hv. formanni landbn. fyrir afgreiðslu á þessari tillögu. Ég er 1. flm. hennar. Meginefni hennar hefur að vísu tekið nokkrum breytingum eins og rætt var um fyrr í vetur. Ég er þess fullviss að samþykkt tillögunnar muni leiða til góðs fyrir landbúnaðinn í heild sinni á sviði menntamála og fagna því og ítreka þakkir mínar til formanns og annarra nefndarmanna í landbn.