Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):
Herra forseti. Í upphafi máls míns vil ég taka það fram að ég er vel meðvitaður um þær auknu kröfur sem gerðar eru til samræmdra prófa en ég vil einnig vekja athygli á því, sem við höfum rætt áður á Alþingi, að birting niðurstaðnanna á m.a. rætur að rekja til nýrra upplýsingalaga þannig að hvað sem hefði liðið vilja stjórnvalda og hvað sem hefði liðið því að grunnskólinn flyttist frá ríki til sveitarfélaga, þá eru upplýsingalögin þannig úr garði gerð að það lá fyrir að að birta varð þessar upplýsingar sem við gerðum nú upp úr áramótunum.
Að því er varðar fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra prófa að öðru leyti kemur tilgangur prófanna í 10. bekk grunnskóla fram í 3. gr. reglugerðar nr. 516/1996. Reglugerðin er sett á grundvelli grunnskólalaganna sem af hálfu ráðuneytisins hefur verið túlkuð á þann veg að öllum þeim sem eru í grunnskóla ber að ganga undir samræmd próf. Tilgangur prófanna er að athuga eftir því sem kostur er hvort námsmarkmiðum aðalnámskrár í viðkomandi grein hafi verið náð, vera leiðbeining um inntöku nemenda á mismunandi námsbrautir framhaldsskóla, veita nemendum og foreldrum þeirra upplýsingar um námsárangur og námsstöðu nemenda og veita upplýsingar um hvernig skólar standi í þeim námsgreinum sem prófað er úr miðað við aðra skóla landsins.
Til að uppfylla þau markmið sem koma fram í reglugerðinni er nú unnið að verksamningi til fimm ára milli menntmrn. og Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála. Samningurinn tekur til samningar prófanna, framkvæmdar og úrvinnslu. Þar er m.a. kveðið á um ákveðið vinnuferli sem skal fylgja til að tryggja áreiðanleika og réttmæti prófanna. Í stuttu máli er vinnuferlið þannig að gera skal prófáætlun og mat á henni. Þá fylgir samning prófverkefna í samræmi við prófáætlun, samning matsreglna, forprófun einstakra verkefna og mat á þeim. Þegar samræmd próf hafa verið lögð fyrir nemendur verður leitað eftir áliti kennara í viðkomandi árgangi og námsgrein og jafnframt verður leitað álits úrtaks nemenda. Tilgangur með mati kennara og nemenda er m.a. að fá stuðning og aðhald við samningu prófáætlunar og prófspurninga, en er jafnframt liður í gæðastjórnun rannsóknastofnunar við samningu og framkvæmd samræmdra prófa.
Skv. 12. gr. reglugerðarinnar um samræmd próf skulu nemendur fá einkunn í heilum og hálfum tölum á einkunnarkvarðanum 1--10 og skal skrá þessar einkunnir á vitnisburðarblöð nemenda. Auk þessara einkunna fá nemendur yfirlit yfir frammistöðu sína í einstökum greinum samræmdra prófa og verða þessar einkunnir normaldreifðar til að tryggja samanburðarhæfni þeirra. Þá fá nemendur einnig normaldreifðar heildareinkunnir til upplýsinga um kunnáttu sína miðað við aðra nemendur. Með þessu móti fæst þversnið af kunnáttu nemenda sem auðveldar að greina styrk og veikleika nemenda.
Í verksamningnum milli ráðuneytis og Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála er kveðið á um að stofnunin skuli árlega gefa út tvö rit með yfirliti yfir heildarniðurstöðu prófanna, sbr. 13. gr. reglugerðar um samræmd próf. Í riti um frammistöðu nemenda í einstökum skólum skulu koma fram upplýsingar um hvernig skólar standa í samræmdum námsgreinum miðað við aðra skóla landsins og verða gefnar upplýsingar um skóla sem hafa 11 nemendur eða fleiri. Í riti um almennar niðurstöður samræmdra prófa skal m.a. koma fram í hvaða mæli námsmarkmiðum aðalnámskrár í viðkomandi námsgrein hefur verið náð og efni til leiðbeiningar fyrir kennara í tengslum við áherslur í kennslu. Í ritinu verða einnig upplýsingar um framkvæmd og innihald prófanna, frammistöðu í einstökum verkefnum, námsháttum og prófunum í heild eftir landshlutum og kyni.
Með þessum ítarlega verksamningi um samningu, framkvæmd og úrvinnslu samræmdra prófa telur ráðuneytið að fagleg vinnubrögð séu tryggð og þar með sé einnig tryggt réttmætt og trúverðugt námsmat sem tekur mið af markmiðum aðalnámskrár. Samningurinn uppfyllir einnig upplýsingaskyldu ráðuneytisins gagnvart almenningi og öðrum. Þetta eru þau markmið sem við setjum okkur og munum semja um við Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála.
Að því er varðar prófið nú í ár og umræður um stærðfræðiprófið sérstaklega, þá mun verða haldinn fundur fyrir lok maímánaðar að frumkvæði menntmrn. með fulltrúum Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála og kennara og eftir þann fund mun verða tekin lokaákvörðun um hvernig staðið verður að niðurstöðum í þessu umrædda samræmda prófi. Ég tel að leita eigi allra leiða til að koma í veg fyrir þau vandkvæði sem hvað eftir annað verða við framkvæmd á samræmdum prófum og mun leggja mitt af mörkum til þess að það verði gert. Einnig vek ég aftur máls á því að við förum hér að nýsettum grunnskólalögum. Sé það hins vegar vilji Alþingis að breyta um aðferðir varðandi samræmdu prófin, þá má velta fyrir sér ýmsum hugmyndum í því sambandi.