Búnaðargjald

Fimmtudaginn 15. maí 1997, kl. 14:38:59 (6616)

1997-05-15 14:38:59# 121. lþ. 127.5 fundur 478. mál: #A búnaðargjald# (heildarlög) frv., Frsm. meiri hluta GÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur

[14:38]

Frsm. meiri hluta landbn. (Guðni Ágústsson) (andsvar):

Hæstv. forseti. Hv. þm. Egill Jónsson liggur ekkert vel við höggi. Við höfum ekki farið hörðum orðum um hann, þingmenn Framsfl. Hins vegar hefur hann haldið hér miklar ræður í báðum þessum málum. Ég hef sagt og endurtek: Ég ber fulla virðingu fyrir þingmanninum og málflutningi hans og læt það ekki pirra mig þannig að hv. þm. Ágúst Einarsson verður bara að eiga sínar meiningar og hafa þær fyrir sig. Ég hef ekkert við hv. þingmann að ræða um þetta.