Búnaðargjald

Fimmtudaginn 15. maí 1997, kl. 14:41:03 (6618)

1997-05-15 14:41:03# 121. lþ. 127.5 fundur 478. mál: #A búnaðargjald# (heildarlög) frv., Frsm. meiri hluta GÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur

[14:41]

Frsm. meiri hluta landbn. (Guðni Ágústsson) (andsvar):

Hæstv. forseti. Miðað við þær breytingar sem hafa orðið á seinni árum með meira frelsi í verði landbúnaðarafurða þá var það kannski að hluta til líka svona með sjóðagjöld sem féllu á heildsöluverð að í sumum tilfellum má segja það sama þar að þær hafa að hluta til komið á launalið.

En ég trúi því og endurtek að þetta gjald verði landbúnaðinum til farsældar og treysti því að menn nái að þróa það þannig að allir verði sáttir við það.