Rannveig Guðmundsdóttir:
Virðulegi forseti. Ég er mjög ánægð ef það reynist svo að búið sé að gera þær breytingar sem samningurinn kallar eftir. Ég treysti því að ef í ljós kemur núna þegar við höfum staðfest hann að frekari lagabreytingar þurfi að gera þá beiti dómsmrh. sér snarlega fyrir því að slík mál komi inn í þingið. Ég er mjög ánægð með að við staðfestum þennan samning og treysti því að stjórnvöld beiti sér fyrir öllum þeim breytingum sem hugsanlega þarf að gera í kjölfarið.