Lánasjóður íslenskra námsmanna

Föstudaginn 16. maí 1997, kl. 11:51:23 (6702)

1997-05-16 11:51:23# 121. lþ. 128.1 fundur 531. mál: #A Lánasjóður íslenskra námsmanna# (endurgreiðsla o.fl.) frv., Frsm. minni hluta SvanJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 128. fundur

[11:51]

Frsm. minni hluta menntmn. (Svanfríður Jónasdóttir) (andsvar):

Herra forseti. Ég heyri að þingmaðurinn hefur algerlega misskilið mig. Það sem ég var að inna þingmanninn eftir vegna þess að hann var að fjalla um efniskostnað, var hvort hann teldi að það væri lagastoð í núgildandi lögum fyrir þeim samtölum sem fram fara að hans sögn við Iðnnemasambandið eða hvort hann telur ástæðu til þess að taka undir með tillögu minni hlutans um það að inn í lögin fari ákvæði um að efniskostnaður teljist til námskostnaðar þannig að stjórninni sé sá einn kostur að túlka það svo og þessi samtöl geti þá farið fram með ásættanlegri niðurstöðu fyrir Iðnnemasambandið.