Frsm. minni hluta iðnn. (Svavar Gestsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sighvati Björgvinssyni fyrir þær hugleiðingar sem hann var með og get tekið undir mjög margt af því sem hann sagði.
Ég vil hins vegar vekja athygli á einu atriði sem er kannski dálítið til umhugsunar fyrir hann og okkur öll. Hann hefur verið talsmaður þess að lagt yrði á veiðileyfagjald í sjávarútvegi til að tryggja það m.a. að þjóðin fengi á þann hátt arð af auðlindinni. Nú má auðvitað hugsa sér að það gerist með öðrum hætti eins og okkur finnst sumum en þetta er málflutningur Alþfl.
Hann hefur einnig talið að eðlilegt væri að jafnvel yrði lagt á víðtækara auðlindagjald eins og t.d. á orkulindirnar og fleira og það er kannski sjónarmið sem ég hef líka mjög oft haldið fram.
En þá vil ég benda honum á það sem ég hugleiði í þessu sambandi að með þeim samningi sem hér er verið að gera og álsamningnum í Straumsvík og járnblendisamningnum er búið að taka út fyrir sviga í orkulindunum þennan hluta og á þennan hluta verður ekki lagður auðlindaskattur eða auðlindagjald meðan þeir samningar eru í gildi. Ég mundi ekki og ekki hann heldur samþykkja að tiltekinn hluti af sjávarútveginum yrði njörvaður þannig niður að ekki yrði hægt að leggja á hann veiðileyfagjald til 10--20 ára ef Alþingi óskaði þess, en það er það sem verið er að gera við þessar orkulindir.