Fjáraukalög 1996

Föstudaginn 16. maí 1997, kl. 20:56:10 (6760)

1997-05-16 20:56:10# 121. lþ. 128.21 fundur 529. mál: #A fjáraukalög 1996# (uppgjör) frv., Frsm. meiri hluta JónK (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 128. fundur

[20:56]

Frsm. meiri hluta fjárln. (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti meiri hluta fjárln. um frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1996. Fjárln. hefur haft frv. til athugunar og fengið skýringar frá fjmrn. Einnig óskaði nefndin eftir umsögn Ríkisendurskoðunar. Í greinargerð frá Ríkisendurskoðun kemur fram að framsetning frv. sé ekki nægilega skýr.

Fjárln. tekur undir athugasemdir Ríkisendurskoðunar um að nauðsynlegt sé að taka inn í frv. yfirlit um umframgjöld stofnana og fjárlagaliða og leggur fram brtt. þar sem viðbótarheimildir á einstakar stofnanir koma fram. Greiðsluyfirlit samkvæmt frv. sýnir að innheimtar tekjur eru 545 millj. kr. hærri en fjárlög og fjáraukalög 1996 gerðu ráð fyrir.

Á gjaldahlið er óskað eftir nettólækkun á heimildum að fjárhæð 1.441,5 millj. kr. sé miðað við heimildir samkvæmt fjárlögum og fjáraukalögum 1996. Lækkunin skýrist af því að ónotaðar fjárheimildir eru að fjárhæð 3.730 millj. kr. og umframgjöld að fjárhæð 2.289 millj. kr. Nefndin leggur áherslu á að í kjölfar nýrra laga um fjárreiður ríkisins verði settar skýrar reglur um flutning fjárheimilda, svo og ónotaðra fjárheimilda.

Meiri hluti nefndarinnar leggur til að frv. verði samþykkt með þeim breytingum er hann leggur fram á sérstöku þingskjali en tilflutningur fjárheimilda milli ára verði afgreiddur með fjáraukalögum fyrir árið 1996 að hausti.

Undir nál. skrifa fyrir hönd meiri hlutans Jón Kristjánsson, Sturla Böðvarsson, Árni Johnsen, Árni M. Mathiesen, Ísólfur Gylfi Pálmason, Hjálmar Jónsson og Arnbjörg Sveinsdóttir.