Umboðsmaður Alþingis

Föstudaginn 16. maí 1997, kl. 21:06:34 (6762)

1997-05-16 21:06:34# 121. lþ. 128.14 fundur 244. mál: #A umboðsmaður Alþingis# (heildarlög) frv., Frsm. SP (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 128. fundur

[21:06]

Frsm. allshn. (Sólveig Pétursdóttir):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. allshn. á þskj. 1240 um frv. til laga um umboðsmann Alþingis.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Gauk Jörundsson, umboðsmann Alþingis, Pál Hreinsson, aðstoðarmann umboðsmanns, Þorstein Geirsson, ráðuneytisstjóra í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, og Þórð Skúlason frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Nefndin óskaði eftir umsögn efnahags- og viðskiptanefndar um þær greinar frumvarpsins sem snúa að starfskjörum umboðsmanns Alþingis og fór þess á leit við skrifstofu Alþingis að framkvæmt yrði kostnaðarmat í samræmi við 2. mgr. 30. gr. þingskapalaga. Var niðurstaða matsins sú að vegna aukins umfangs embættisins væri gert ráð fyrir að bæta þurfi við einu stöðugildi lögfræðings. Áætlaður kostnaður vegna þessa er 3,5 millj. kr. Ekki er gert ráð fyrir að breytingarnar kalli á frekari kostnað.

Meginbreyting frumvarpsins á efni gildandi laga um umboðsmann Alþingis felst í að tryggja að starfssvið umboðsmanns nái til allrar opinberrar stjórnsýslu, bæði ríkis og sveitarfélaga, en ekki hefur verið fullt samræmi milli gildissviðs stjórnsýslulaga og starfssviðs umboðsmanns. Umboðsmaður hefur líka fram til þessa einungis getað fjallað um þær stjórnvaldsákvarðanir sveitarfélaga sem kæranlegar hafa verið til ráðherra eða annars stjórnvalds ríkisins. Þá er í frumvarpinu gengið út frá að starfssvið umboðsmanns nái einnig til starfsemi einkaaðila að því leyti sem þeim hefur með lögum verið fengið opinbert vald til að taka ákvarðanir um rétt eða skyldu manna í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga. Er sú heimild mjög brýn þar sem færst hefur í vöxt að einkaaðilum sé fengið slíkt opinbert vald í hendur. Þá eru lagðar til nokkrar aðrar breytingar á efni, m.a. að greint verði betur á milli þeirra mála sem byrja að frumkvæði aðila sem telja rétt á sér brotinn og þeirra mála sem byrja að frumkvæði umboðsmanns Alþingis.

Í 13. gr. er jafnframt gert ráð fyrir að forsætisnefnd ákvarði biðlaun umboðsmanns er hann lætur af starfi, en samkvæmt gildandi lögum á umboðsmaður rétt á biðlaunum í þrjá mánuði. Í umsögn efnahags- og viðskiptanefndar kemur fram að ekki sé ástæða til að um biðlaunarétt umboðsmanns Alþingis fari eftir öðrum reglum en almennt gilda um embættismenn ríkisins og leggur nefndin til að í 13. gr. verði vísað í VI. kafla laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og leggur allshn. fram brtt. í samræmi við það.

Í 10. gr. er lagt til að fest verði í lög að umboðsmaður geti lagt til við dómsmálaráðherra að veitt verði gjafsókn í máli sem heyrir undir starfssvið umboðsmanns og hann telur rétt að lagt verði fyrir dómstóla. Var þetta nokkuð rætt í nefndinni, en slíkt ákvæði er nú að finna í reglum um störf og starfshætti umboðsmanns. Voru nefndarmenn sammála um að eðlilegt væri að umboðsmaður hefði heimild til að mæla með gjafsókn í dómsmáli á hendur viðkomandi stjórnvaldi ef stjórnvöld sinna ekki tilmælum hans. Fram kom í máli umboðsmanns að aðeins ætti að nýta heimild þessa í undantekningartilfellum.

Leggur allshn. til að frv. verði samþykkt með breytingu sem gerð er grein fyrir á þskj. 1241.

Undir nál. rita allir nefndarmenn í allshn.