Álbræðsla á Grundartanga

Föstudaginn 16. maí 1997, kl. 22:39:06 (6785)

1997-05-16 22:39:06# 121. lþ. 128.2 fundur 445. mál: #A álbræðsla á Grundartanga# frv., KH (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 128. fundur

[22:39]

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Ég tel æðimarga aðra atvinnukosti vænlegri en mengandi stóriðju sem hefur neikvæð áhrif á þá ímynd hreinleika og ómengaðs umhverfis sem felur í sér mestu möguleikana til framtíðar. Fyrirhugaðar mengunarvarnir eru ekki í samræmi við ýtrustu kröfur um mengunarvarnir og ekki hefur verið staðið rétt og eðlilega að þessum undirbúningi. Ég er andvíg þessu frv. og segi nei.