Suðurlandsskógar

Föstudaginn 16. maí 1997, kl. 23:13:50 (6789)

1997-05-16 23:13:50# 121. lþ. 128.20 fundur 524. mál: #A Suðurlandsskógar# frv., SJóh (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 128. fundur

[23:13]

Sigríður Jóhannesdóttir:

Herra forseti. Þetta er hið ágætasta mál en það er nokkur vansi að ekki tókst í meðförum nefndarinnar að koma inn viðbót við 3. gr. sem tæki til þess að gert yrði gert umhverfismat varðandi þetta verkefni. Nokkuð var komið til móts við þetta í nefndaráliti og einnig gaf hæstv. umhvrh. yfirlýsingu um samráð við stofnanir umhvrn. um umhverfismat en ég tel ekki vera alveg nógu langt gengið og greiði því ekki atkvæði um þessa grein.