Forseti (Ragnar Arnalds):
Áður en gengið verður til dagskrár fer fram umræða utan dagskrár um málefni barna og ungmenna. Málshefjandi er Margrét Frímannsdóttir. Heilbrrh., Ingibjörg Pálmadóttir, og félmrh., Páll Pétursson, verða til andsvara.
Samkomulag er um það milli þingflokkanna að umræðan standi í allt að tvær klst. Ræðutími verður þessi: Málshefjandi hefur í fyrra sinn 15 mín. og í síðara sinn fimm mín. Talsmenn þingflokkanna hafa 15 mín. hver í fyrra sinn og fimm mín. í síðara sinn. Heilbrrh. hefur 15 mín. í fyrra sinn og fimm mín. í síðara sinn. Félmrh. hefur 15 mín. í fyrra sinn og fimm mín. í síðara sinn. Aðrir þingmenn og ráðherrar hafa fimm mín. í fyrra sinn.