Vegáætlun 1997 og 1998

Laugardaginn 17. maí 1997, kl. 12:44:55 (6850)

1997-05-17 12:44:55# 121. lþ. 130.4 fundur 309. mál: #A vegáætlun 1997 og 1998# þál., GÁS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 130. fundur

[12:44]

Guðmundur Árni Stefánsson:

Virðulegur forseti. Hér er ekki um raunverulega vegáætlun að ræða. Hér er eingöngu verið að endurskoða og skera niður gildandi vegáætlun sem gildir fyrir árið 1995--1998. Hér er um fráleita málsmeðferð að ræða að öllu leyti og ég tek ekki þátt í henni og greiði því ekki atkvæði.