Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Ég ítreka afstöðu okkar jafnaðarmanna. Við erum andvígir því ákvæði frv. þar sem heimilað er að taka veð í aflakvóta skips samhliða því sem veð er tekið í skipinu sjálfu. Við erum andvígir því að með þessum hætti sé verið að veita heimild til að veðsetja sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar, eign sem þjóðin á. Við erum andvígir því að með þessum hætti skuli menn vera að opna möguleikann fyrir því að gefa erlendum lánardrottnum íslenskra útgerðarfyrirtækja þann möguleika að þeir geti tekið veð í auðlind sem þjóðin á sameiginlega. Við hörmum að varðstaða Framsfl. í málinu hafi gjörsamlega brugðist og lýsum ábyrgð á hendur þess flokks. Ég tel að rétt sé að ný ríkisstjórn að loknum næstu kosningum láti það verða sitt fyrsta verk að breyta ákvæðinu.