Guðjón Guðmundsson:
Herra forseti. Skilningur minn á 3. gr. þessa frv. er sá að verið sé að heimila veðsetningu aflaheimilda. Það tel ég að leiði til þess að erfiðara en ella verði að gera þær breytingar sem ég tel nauðsynlegt að gera á stjórn fiskveiða og hef oft kynnt hér á Alþingi. Þess vegna greiddi ég atkvæði gegn síðari hluta greinarinnar við 2. umr. um frv. og þess vegna treysti ég mér ekki til að samþykkja þetta frv. þó í öðrum greinum þess sé margt sem til bóta horfir.