Þingfrestun

Laugardaginn 17. maí 1997, kl. 14:47:57 (6890)

1997-05-17 14:47:57# 121. lþ. 132.93 fundur 344#B Þingfrestun#, forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 132. fundur

[14:47]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 121. löggjafarþings, frá 17. maí 1997 eða síðar ef nauðsyn krefur, til septemberloka.

Gjört á Bessastöðum, 17. maí 1997.

Ólafur Ragnar Grímsson.

__________________

Davíð Oddsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 121. löggjafarþings, er frestað.

Ég óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins svo og landsmönnum öllum allra heilla.