Ársskýrslur LÍN

Mánudaginn 07. október 1996, kl. 15:20:21 (44)

1996-10-07 15:20:21# 121. lþ. 3.1 fundur 30#B ársskýrslur LÍN# (óundirbúin fsp.), GGuðbj
[prenta uppsett í dálka] 3. fundur

[15:20]

Guðný Guðbjörnsdóttir:

Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir svarið. Ég vil í þessu sambandi minna á að nú standa til breytingar á Lánasjóði íslenskra námsmanna og það hlýtur að vera grundvallaratriði bæði fyrir stjórnarandstöðuþingmenn og aðra að upplýsingar um fjárhagsstöðu og þær breytingar sem átt hafa sér stað hjá sjóðnum liggi skýrt fyrir. Á þessu hefur verið misbrestur. Ég vona svo sannarlega að þessi gögn verði tiltæk sem allra fyrst hvort sem er fyrir námsmenn, þingmenn eða almenning í landinu.