Arnarholt

Mánudaginn 07. október 1996, kl. 15:30:22 (51)

1996-10-07 15:30:22# 121. lþ. 3.1 fundur 32#B Arnarholt# (óundirbúin fsp.), heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 3. fundur

[15:30]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Ég ítreka að þegar samkomulagið var gert milli heilbrrn., fjmrn. og borgarinnar var það um óbreyttan rekstur á þessu ári og sérstaklega skyldi hlíft geðsjúkum, endurhæfingarsjúklingum og öldruðum. Aftur á móti hafa nú verið gerðar tillögur um að loka einni deild og ég endurtek að samkvæmt upplýsingum er þetta mjög illa farin deild og þess vegna þurfi að losa hana. Það er ekki verið að útskrifa neina sjúklinga heldur flytja þá í annað öryggi.