Svanfríður Jónasdóttir (andsvar):
Herra forseti. Þessi þáltill. gengur út á það að Alþingi taki stefnumarkandi ákvörðun, þá ákvörðun að lagt verði á veiðileyfagjald í íslenskum sjávarútvegi. Sú ákvörðun er númer eitt rökstudd með því að það sé réttlátt þegar ríkið er að úthluta takmörkuðum gæðum að þeir sem þeirra njóta greiði fyrir. Þetta er grundvöllur þessa tillöguflutnings.
Þingmaðurinn las sjálfur upp úr greinargerðinni orð sem drógu til baka það sem hann hélt fram fyrr, nefnilega það að tillagan blessaði með einhverjum hætti núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi. Það er mikill misskilningur, enda er það tekið fram þar sem fjallað er um þá nefndarskipan sem lögð er til, vegna þess að hér er verið að tala um stórt efnahagslegt mál og margir þurfa að koma að ákvörðunum, þar er það m.a. tínt til að eitt af því sem þurfi að skoða, eitt af því sem auðvitað komi til álita sé fiskveiðistjórnunarkerfið, eðlilega. Og ég fer ekki ofan af því, vegna þess að hv. þm. vék einnig að því, að varanleg viðskipti með kvóta, það að leyfa að selja það sem manni er úthlutað ókeypis úr sameiginlegri auðlind þjóðarinnar hefur ekkert meira siðferðisgildi en það að leigja það. Það er einfaldlega ranglátt, og um það er þjóðin sammála, að menn hafi leyfi til þess að leigja eða selja það sem aðrir eiga.