Árni M. Mathiesen (andsvar):
Herra forseti. Það er slæmt ef hv. þingmönnum leyfist ekki að spyrja spurninga vegna hv. flutningsmanna tillagna sem þessara sem lagðar eru fram á Alþingi. Hv. 1. flm. reyndi að færa rök fyrir því að það að fella niður þessi gjöld mundi spara í heilbrigðiskerfinu. Helsta röksemdin hjá honum fyrir þessu var að sérfræðingakostnaður mundi sparast ef aðgangur að heilsugæslustöðvunum yrði ókeypis. Ef mér skjátlast ekki þá eru ferðir til sérfræðinga yfirleitt dýrari en ferðir á heilsugæslustöðvarnar. Ég fæ þetta ekki til þess að ganga upp ef hann er að gera þetta sérstaklega til þess að bæta hag þeirra sem verst eru settir og hann ætlar að spara með því að þeir hætti að fá þjónustuna þar sem hún er dýrari í dag með því að lækka eða fella niður gjöldin á þjónustunni þar sem hún er ódýrari í dag. Ég fæ þetta alls ekki til að ganga upp.
Það er hægt að útfæra heilsugæsluna á ýmsan máta. Það er alveg rétt hjá honum. Við völdum það í tíð síðustu ríkisstjórnar á meðan ráðherrar Alþfl. gegndu embætti ráðherra heilbrigðismála að auka þjónustugjöldin. Það var hluti í því að spara í heilbrigðiskerfinu. Ég held að það hafi komið nokkuð vel út og að árangur hafi náðst með þessari aðferð. Hins vegar held ég að röksemdir hv. 1. flm. gangi ekki upp því að eftir stendur að hann ætlar að fjármagna tillögu sína með því að minnka afganginn af fjárlögunum og minnka þannig þá upphæð sem við höfum til að greiða niður skuldir ríkisins og minnka þannig skattbyrðina á unga fólkinu sem á að greiða skatta í framtíðinni.