Þjónustugjöld í heilsugæslu

Mánudaginn 14. október 1996, kl. 16:17:12 (281)

1996-10-14 16:17:12# 121. lþ. 7.3 fundur 6. mál: #A þjónustugjöld í heilsugæslu# (almannatryggingar, heilbrigðisþjónusta) frv., ÁMM (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 7. fundur

[16:17]

Árni M. Mathiesen (andsvar):

Herra forseti. Ekki var laust við að eitthvað drægi úr stuðningi hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur við tillögu Alþb. og óháðra. Burt séð frá yfirlýsingum hennar um Sjálfstfl., sem voru eins og biluð plata úr síðustu kosningabaráttu, datt mér helst í hug að ræða hennar á undan væri frekar en efnislegur stuðningur við tillögu Alþb. og óháðra liður í innanflokksátökum jafnaðarmanna hvort sem þeir eru í Þjóðvaka eða Alþfl.