Flm. (Kristín Halldórsdóttir):
Herra forseti. Á þskj. nr. 27 er að finna 27. mál þessa þings um varðveislu ósnortinna víðerna. Tillöguna flytja auk mín hv. þingkonur Guðný Guðbjörnsdóttir og Kristín Ástgeirsdóttir. Tillagan hljóðar svo, með leyfi forseta:
,,Alþingi ályktar að fela umhvrh. að marka stefnu um varðveislu ósnortinna víðerna landsins. Stofnaður verði starfshópur, skipaður fulltrúum Náttúrufræðistofnunar, Náttúruverndarráðs, Skipulags ríkisins og Landmælinga Íslands undir forustu fulltrúa umhvrn., sem falið verði það hlutverk að skilgreina hugtakið ósnortið víðerni og kortleggja þau svæði á Íslandi sem falla undir það. Engar framkvæmdir verði ákveðnar eða hafnar á miðhálendi landsins eða öðrum stórum óbyggðum svæðum fyrr en að þessu verki loknu og settar hafa verið reglur um varðveislu og nýtingu ósnortinna víðerna landsins.``
Þannig hljóðar þessi tillaga sem reyndar var lögð fram á síðasta þingi en of seint til þess að ráðrúm gæfist til að mæla fyrir henni og koma henni til nefndar. Tillagan er flutt núna óbreytt en með örlítið breyttri greinargerð.
Við völdum að hafa tillöguna óbreytta þrátt fyrir breytingar sem gerðar hafa verið á stjórnun náttúruverndarmála. Menn kunna að telja eðlilegt að það verði Náttúruvernd ríkisins í stað Náttúruverndarráðs sem skipi einn fulltrúa í þennan starfshóp, en ég vísa því þá hér með til umfjöllunar og ákvörðunar viðkomandi þingnefndar.
Sem betur fer er sífellt vaxandi skilningur á mikilvægi umhverfisverndar og náttúruverndar og í greinargerð með tillögunni er vísað til orða Gunnars G. Schrams prófessors sem hann viðhefur í formála bókar sinnar, Umhverfisréttur. Verndun náttúru Íslands, sem út kom á síðasta ári og er gefin út af háskólaútgáfunni og Landvernd. Þessi orð hljóða svo, með leyfi forseta:
,,Náttúra Íslands er ein mikilvægasta auðlind og gersemi þjóðarinnar. Því skiptir miklu að við nýtum hana og verndum af framsýni og fyrirhyggju í þágu þeirra kynslóða sem erfa munu landið.
Það er eitt af mikilvægustu verkefnum nútíðar og framtíðar að vernda landið og lífríki þess gegn mengun og öðrum umhverfisspjöllum. Flestum er nú ljósara en áður hve mikils virði þau lífsgæði eru sem felast í óspilltu umhverfi, hreinu lofti, tæru vatni og óheftum samvistum við náttúruna í hennar margbreytilegu mynd.``
Þessi orð mega teljast dæmigerð fyrir þau viðhorf sem góðu heilli njóta vaxandi skilnings og fylgis meðal þjóðarinnar. Æ fleirum mun nú orðið ljóst að í óspilltri náttúru Íslands felst gífurleg eign íslensku þjóðarinnar, mesta eignin ásamt auðlindum hafsins og er ekki auðvelt að meta hver eignin er verðmeiri eins og komist var að orði í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins 14. janúar sl. Þar var eindregið hvatt til víðtækra, stefnumarkandi umræðna á Alþingi og meðal almennings um það hvernig standa beri að verndun öræfa og óbyggða á næstu árum og áratugum.
Sú umræða hefur vissulega verið nokkur á undanförnum vikum og mánuðum og m.a. efndu Ferðamálaráð Íslands og Skipulag ríkisins til ráðstefnu um þessi efni í mars sl. þar sem fjallað var fyrst og fremst um nýtingu hálendisins með tilliti til ferðaþjónustu. Frummælendur og þátttakendur á ráðstefnunni virtust á einu máli um mikilvægi þeirrar auðlindar sem miðhálendið er en höfðu mismunandi hugmyndir um hversu langt mætti ganga til að greiða för um það og til að njóta þess sem þar er að finna. Sumir vildu markvissa uppbyggingu og betri vegi á hálendinu, en aðrir töldu vonda vegi hálendinu beinlínis til tekna. Ýmsir urðu til að minna á ályktun sem samþykkt var á fjölmennri ferðamálaráðstefnu Ferðamálaráðs árið 1991 þess efnis að nauðsynlegt væri að setja miðhálendi Íslands undir eina skipulagsstjórn og að svæðið yrði skýrt afmarkað og skilgreint og ferðamálaráðstefnan ályktaði að stefna bæri að því að gera hálendið allt að einum þjóðgarði.
Um þessar mundir vinnur samvinnunefnd héraðsnefnda að svæðisskipulagi fyrir miðhálendi Íslands og er starf nefndarinnar vel á veg komið. Hún hefur kynnt starf sitt og hugmyndir víða á undanförnum vikum og stefnir að skilum fyrir árslok. Í umfjöllun nefndarinnar hefur hugtakið ósnortið víðerni komið nokkuð til umræðu og verið notað, en þegar leitað hefur verið eftir kemur í ljós að skilgreining á þessu hugtaki er ekki fyrir hendi. Þó er víða farið að nota þetta hugtak, víðar en hjá þessari nefnd og í umfjöllun um hennar starf. Sem dæmi má nefna að fjallað er í nokkrum orðum um óbyggð víðerni í drögum að framkvæmdaáætlun til aldamóta um sjálfbæra þróun í íslensku samfélagi. Þetta eru drög sem mér bárust fyrir örfáum dögum, en þar stendur, með leyfi forseta:
,,Óbyggð víðerni eru varla til lengur í Evrópu nema sums staðar á Norðurlöndunum, þar á meðal Íslandi. Líta má á þau sem auðlind þar sem stór hluti ferðamanna sem heimsækir landið kemur hingað til að sjá óbyggir og ósnortna náttúru. Með mannvirkjagerð á hálendinu og annars staðar í óbyggðum er gengið á þessa auðlind. Þetta ber að hafa í huga við framkvæmdir á óbyggðum stöðum jafnvel þó að þær séu ekki taldar skaða merkar náttúruminjar eða viðkvæm vistkerfi. Þar sem ákveðið er að ráðast í mannvirkjagerð á slíkum svæðum þarf að gæta þess að sem minnst rask og sjónmengun hljótist af.``
Þetta styður á vissan hátt efni þeirrar tillögu sem hér er mælt fyrir. Hins vegar er ekki gott að mínu mati að nota þetta hugtak án þess að skýrt sé við hvað er átt. Vissulega felst í orðinu sjálfu að átt er við allstórt landsvæði sem maðurinn hefur ekki sett mark sitt á en hversu stórt svæði er átt við og hversu langt við viljum ganga í því að útiloka mannleg ummerki, um það hefur engin raunveruleg umræða átt sér stað. Hugtakið ósnortið víðerni þarf að skilgreina og er brýnt að skilgreina. Í því efni má leita til annarra þjóða að fyrirmyndum, t.d. til Norðmanna. Þeir hafa sett sér ákveðnar viðmiðanir og reglur um ósnortið víðerni sem þeir kalla ,,villmark`` og hafa þegar kortlagt svæði sem falla undir þær viðmiðanir. Þeir eru núna að vinna að nánari úttekt á þessum svæðum og kortleggja þau enn frekar. Slík svæði verða að vera í a.m.k. 5 km fjarlægð frá mannvirkjum á borð við uppbyggða vegi, járnbrautir, orkuver og raflínur. Miðað við þá skilgreiningu geta aðeins um 12% landsins talist til ósnortinna víðerna og varð mörgum Norðmanninum hverft við þær upplýsingar í lok síðasta árs. Þeir höfðu talið sig ríkari af þeirri auðlind en raun er orðin og mætti það verða okkur til varnaðar.
Þá má sækja fyrirmyndir til Bandaríkjamanna sem hafa verið brautryðjendur í svæðisbundinni náttúruvernd. Þeir hafa víða tekið frá svæði sem flokkast undir ósnortið víðerni eða ,,wilderness`` eins og þeir kalla slík verndarsvæði. Þessi svæði eru orðin yfir 500 talsins og eru vernduð með lögum þannig að í hvert sinn sem ætlunin er að hrófla við einhverju þarf umræðu um málið á þingi. Eftirfarandi skilgreining á ,,wilderness`` er frá árinu 1964 og ég vil gjarnan lýsa hér eftir því sem ég hef reynt að þýða það, með leyfi forseta:
,,Ósnortið víðerni, öndvert við land sem mótast af umsvifum mannsins, er hér með skilgreint sem landsvæði þar sem landið og lífríki þess er upprunalegt og maðurinn kemur þar aðeins sem gestur. Ósnortið víðerni er frekar skilgreint í þessum kafla sem landsvæði í eigu Alríkisstjórnarinnar, svæði með sínum upprunalegu einkennum og áhrifum og án varanlegra breytinga af völdum manna eða mannlegrar búsetu, svæðið nýtur verndar og stjórn þess miðar að því að vernda náttúrulegar aðstæður þess. Það á:
1. í meginatriðum að bera svip af náttúruöflunum einum saman og mannleg ummerki að vera tæpast merkjanleg;
2. að fela í sér einstaka möguleika til einveru eða frumstæðrar eða óhindraðrar afþreyingar;
3. að vera hið minnsta fimm þúsund ekrur (um 2.000 hektarar) eða nægilega stórt til þess að framkvæmanlegt sé að vernda það og nýta í óbreyttri mynd;
4. að búa einnig gjarna yfir vistfræðilegri eða jarðfræðilegri sérstöðu eða öðrum einkennum sem gefa því vísindalegt gildi, fræðslugildi eða gildi sem felast í landslagi eða sögu svæðisins.``
Löggjöf og reynsla Bandaríkjamanna gæti reynst notadrjúg við það starf sem nauðsynlegt er til þess að marka stefnu um varðveislu og nýtingu ósnortinna víðerna hér á landi þótt vafalaust tækjum við á einhvern hátt öðruvísi á málum með tilliti til aðstæðna hér á landi.
Herra forseti. Um allan heim hefur maðurinn breytt landi og náttúru í sína þágu eftir þörfum og vexti og til skamms tíma óvitandi og áhyggjulaus um afleiðingar gerða sinna. Óbætanlegt tjón hefur verið unnið á umhverfi og náttúru og víða er svo komið að ósnortið land og villt náttúra telst fágætur munaður. Í mörgum löndum er nú unnið að verndun slíkra svæða og víst er að möguleikar Íslendinga í þeim efnum eru ýmsum öfundarefni. Það vakti t.d. athygli mína að ekki færri en tvær greinar eða viðtöl voru í síðasta sunnudagsblaði Morgunblaðsins þar sem erlendir ferðamenn lýstu reynslu sinni af ferðalögum um landið og eins og oftast er í viðtölum af þessu tagi, sem eru sannarlega ekki neitt einsdæmi, var ljóst að einstæð náttúra landsins dró þá hingað, náttúran, víðáttan og fámennið. Sérstaða Íslands felst m.a. í því hve strjálbýlt landið er og stórir hlutar þess enn óbyggðir og lausir við mannvirki og rask. Í þeim svæðum felast möguleikar sem flestar aðrar þjóðir hafa alls ekki og geta aldrei öðlast. Íslendingar hafa enn tækifæri sem engin önnur þjóð í Evrópu hefur og þótt víðar væri leitað. Á Íslandi er enn hægt að taka frá stórar víðáttur, náttúrulegar heildir og varðveita þær þannig að komandi kynslóðir fái notið þeirra, geti leitað sér þangað lífsfyllingar og þekkingar.
Það er nauðsynlegt að skilgreina hvað átt er við með hugtakinu ,,ósnortið víerni`` og gera sér grein fyrir hvaða svæði geta fallið undir slíka skilgreiningu. Að svo búnu þarf að vinna nánari úttekt á þeim svæðum og setja ákveðnar reglur um varðveislu þeirra og umgengni um þau. Þetta verkefni er nauðsynleg viðbót við það skipulagsstarf sem nú er unnið að og fyrr er getið. Tillagan hefur það markmið að efla umræðu um þessi mál og tryggja nauðsynlegan undirbúning fyrir stefnumótun, um verndun og nýtingu ósnortinna víðerna landsins.
Herra forseti. Hér á undan lauk reyndar ekki umræðu sem þegar er orðin löng og mikil um eina af auðlindum þjóðar okkar, þ.e. fiskstofnana í hafinu umhverfis okkur. Sú tillaga sem ég mæli fyrir er um verndun og ráðstöfun annarrar mikilvægrar auðlindar okkar. Þessi tillaga hefur þegar vakið talsverða athygli og ýmsir komið að máli við mig um efni hennar, bæði ýmsir hv. þingmenn og einstaklingar utan þings, jafnvel aðilar erlendis sem kom mér reyndar sannarlega á óvart þar sem ég hef gert lítið af því sjálf að koma henni á framfæri og allra síst erlendis. En lengi má koma á óvart. Vegna þess mikla áhuga sem ég hef fundið á þessu máli eru viss vonbrigði að þurfa að mæla fyrir því hér við þessar aðstæður þegar klukkan er farin að ganga sjö og fundasetuþol þingmanna á þrotum og þar af leiðandi fáir viðstaddir af þeim sem e.t.v. hefðu viljað leggja orð í belg. Ég hef reyndar ekki trú á því að tillagan mæti andstöðu. Þá staðreynd að ég stend hér og læt bjóða mér þessar aðstæður má kannski flokka undir þingeyska þrjósku en hún stafar einnig stafar af einlægum áhuga mínum á því að koma tillögunni sem fyrst til nefndar.
Ég legg til, herra forseti, að að lokinni umræðunni sé tillögunni vísað til síðari umr. og hv. umhvn.