Fjáraukalög 1996

Fimmtudaginn 17. október 1996, kl. 12:18:05 (414)

1996-10-17 12:18:05# 121. lþ. 10.2 fundur 48. mál: #A fjáraukalög 1996# frv., SvG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 10. fundur

[12:18]

Svavar Gestsson (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir þessa ábendingu en ég gleymdi að nefna það áðan að lyftur í Kirkjustrætishúsinu eru örugglega fyrir fatlaða. Það held ég að sé alveg á hreinu og það er mikilvægt að hafa það í huga í sambandi við frágang þessara húsa. Það skiptir miklu máli og það á ekki að gera grín að því úr þessum ræðustól, jafnvel þó það kosti peninga.