Hraðamælar í bifreiðum

Mánudaginn 28. október 1996, kl. 15:25:54 (510)

1996-10-28 15:25:54# 121. lþ. 11.2 fundur 49#B hraðamælar í bifreiðum# (óundirbúin fsp.), HjálmJ
[prenta uppsett í dálka] 11. fundur

[15:25]

Hjálmar Jónsson:

Herra forseti. Ég bíð spenntur eftir niðurstöðu þessarar könnunar og tel að full ástæða sé til að kanna þetta mál í tengslum við umfjöllun hins háa Alþingis á breytingum á umferðarlögum og ekki síst í því sem viðkemur hámarkshraða bifreiða. Það er einhvern veginn þannig að manni finnst maður vera allt of fljótur upp í 90 og fáist þarna einhver prósent þá er það alltaf til bóta.