Einbreiðar brýr

Mánudaginn 28. október 1996, kl. 15:29:30 (514)

1996-10-28 15:29:30# 121. lþ. 11.2 fundur 50#B einbreiðar brýr# (óundirbúin fsp.), samgrh.
[prenta uppsett í dálka] 11. fundur

[15:29]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Ég er sennilega ekki skýrmæltur. Ég sagði áðan að við hefðum sýnt þessu áhuga bæði Alþingi, ráðuneyti og Vegagerð enda hefur fé til öryggismála verið stóraukið á þessu ári og við réðumst í það að breikka eða endurbyggja margar brýr í sumar til þess að draga úr slysahættu.