Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):
Herra forseti. Ég vil ekki viðurkenna að tök stjórnvalda hafi verið neitt fálmkennd. Það var óverjandi að halda áfram rekstri Tinda. Tveir unglingar voru í meðferð þegar þeim var lokað. Þarna voru 13 eða 14 stöðugildi. (Gripið fram í.) Nei, það var ætlað fyrir 13 eða 14 vistmenn. Meðferð á Stuðlum er miklu vænlegra úrræði og Stuðlar eru sem betur fer teknir til starfa. Þar að auki tekur annað heimili til starfa á næsta ári. Ég tel að stjórnvöld hafi reynt að vinna vel að málinu. Það er hins vegar rétt að stjórnvöld hafa ekki náð að bægja vandanum frá og þetta eru alvarlegar uplýsingar sem þarna koma fram. 50 ungir vímuefnaneytendur eru allt of há tala. Það er rétt að ekki er á valdi stjórnvalda einna að taka á þessum vanda. Við erum tilbúnir að reyna að styðja sveitarfélög í baráttu þeirra og ég er að reyna að taka á vandanum í félagi við Reykjavíkurborg.